Greinasafn fyrir flokkinn: Ættfræði

Halldóra Sigríður Gísladóttir

Hér er mynd af Halldóru Sigríði Gísladóttur systur Línu Dalrósar.

Hún fæddist 27. október 1910 í Bolungarvík og andaðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi 30. ágúst 2002

Halldóra eða Dóra sem hún var alltaf kölluð ólst upp í Bolungarvík til fermingaraldurs. Var eftir það í vist á Ísafirði og í Reykjavík. Bjó með manni sínum Sigurði Sveinssyni á Sleggjulæk frá 1939 meðan hann lifði en flutti síðan í Borgarnes 1988 og var síðustu árin á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi.

Elísabet móðir Línu Dalrósar


Elísabet Guðmundsdóttir, f. 28. 8. 1872 á Meiri Hrauni í Skálavík, d. 23. 5. 1963.

Áslaug Gísladóttir

Mynd af Áslaugu Gísladóttur sem var hálfsystir Línu Dalrósar Gísladóttur. Móðir hennar var Guðbjörg Sigurðardóttir (1851-1919)

Áslaug var fædd 29.júlí 1875 í Tröllatungu, Strandasýslu og látin 29.mars 1946.

Nýtt ættartal

Nýtt ættartal verður gefið út 25. júlí í tilefni af ættarmótinu. Það verður hægt að kaupa prentaða útgáfu (stærð B5 176 x 250 mm) á 2.500 kr. eintakið. Vinsamlega hafið samband við Guðjón Reyni Jóhannessongudjon@heilsunet.is til þess að panta eintak.