Greinasafn fyrir flokkinn: Ljósmyndir

Halldóra Sigríður Gísladóttir

Hér er mynd af Halldóru Sigríði Gísladóttur systur Línu Dalrósar.

Hún fæddist 27. október 1910 í Bolungarvík og andaðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi 30. ágúst 2002

Halldóra eða Dóra sem hún var alltaf kölluð ólst upp í Bolungarvík til fermingaraldurs. Var eftir það í vist á Ísafirði og í Reykjavík. Bjó með manni sínum Sigurði Sveinssyni á Sleggjulæk frá 1939 meðan hann lifði en flutti síðan í Borgarnes 1988 og var síðustu árin á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi.

Jón Ólsen

Jón Ólsen (mynd úr dánarbúi Guðbjargar Jóhannsdóttur)

Jón Svanmundur Ólsen var fæddur á Ísafirði þ.15.mars 1908 og var sonur Áslaugar Gísladóttur sem var hálfsystir Línu Dalrósar, og Óla Ólsen Steinsland frá Dvergasteini í Álftafirði.

Hann fórst aðeins 21 árs ásamt 10 öðrum með vélbátnum Gissuri Hvíta 19.október 1929 í Ísafjarðardjúpi.

Jóhann og Lína Dalrós

Jóhann Sigurðsson (1891-1932) og Lína Dalrós Gísladóttir.

Líklega gæti þessi mynd verið brúðkaupsmynd frá 1923 og er Lína þá 19 ára og Jóhann þá 32 ára.

Elísabet móðir Línu Dalrósar


Elísabet Guðmundsdóttir, f. 28. 8. 1872 á Meiri Hrauni í Skálavík, d. 23. 5. 1963.

Áslaug Gísladóttir

Mynd af Áslaugu Gísladóttur sem var hálfsystir Línu Dalrósar Gísladóttur. Móðir hennar var Guðbjörg Sigurðardóttir (1851-1919)

Áslaug var fædd 29.júlí 1875 í Tröllatungu, Strandasýslu og látin 29.mars 1946.

Viðtal við Jóhann Líndal

Gömul mynd af Jóhanni Líndal sem birtist í grein í Faxa árið 1969

https://timarit.is/page/5182215?iabr=on

Ættarmótið 2019

Ættarmótið 2109 var haldið að Laugum 26-28. júlí 2019 og þótti heppnast vel.

Hér er mynd af öllum hópnum.


Mynd tekin á 50 ára afmæli Línu Dalrósar 1954

Lína 50 ára

Frá vinstri: Linda Rós Kristjónsdóttir, Lína Dalrós Gísladóttir, Steingrímur Kristjónsson, Guðbjörg Jóhannsdóttir, Jóhann Kristjónsson og Laufey Kristjónsdóttir.

 

Bekkurinn afhentur

Laugardaginn 26.júlí 2014 afhentu afkomendur Línu Dalrósar Gísladóttur Bolungarvíkurkaupstað bekk til minningar um Línu. Bekkurinn verður fyrst um sinn staðsettur við sjúkraskýlið.

Athöfnin hófst kl.10:00 um morguninn og fljótlega eftir að hún hófst fór sól að skína í heiði.

Hér eru nokkrar myndir frá afhendingunni.

IMG_3453

Börn Línu þau Jóhann Líndal Jóhannsson, Guðbjörg Jóhannsdóttir og Óskar Jóhannsson

IMG_3451

Bekkurinn sem afhentur var

Áletrun á minningarbekknum

Áletrun á minningarbekknum

IMG_3461

Frá afhendingunni

Elísabet Guðmundsdóttir móðir Línu Dalrósar

Elísabet Guðmundsdóttir
Elísabet Guðmundsdóttir, f. 28. 8. 1872 á Meiri Hrauni í Skálavík, d. 23. 5. 1963.