Greinasafn fyrir flokkinn: Myndbönd

Bolungarvík 1968

Brot úr safni Vigfúss Sigurgeirssonar.

Sýndar eru yfirlitsmyndir af Bolungarvík og svipmyndir úr lífi bæjarbúa á 7. áratugnum. Sjá má vegagerð í Óshlíð, fólk við störf tengd sjávarútvegi, heyskap, réttir, knattspyrnu og sundiðkun, svo eitthvað sé nefnt.

https://www.islandpaafilm.dk/is/film/bolungarvik-1968

Ómar heimsækir Línu Dalrós 1992

Árið 1992 tók Ómar Ragnarsson viðtal við Línu Dalrós.

 

Bolungarvík myndband

í tilefni af 40 ára afmæli kaupstaðarins árið 2014, lét bæjarstjórn gera stutta kynningarmynd um kaupstaðinn. Myndin grípur niður í sögu kaupstaðarins frá landnámi til ársins 1974 þegar Bolungarvík hlaut kaupstaðarréttindi.
Myndin var forsýnd í Félagsheimili Bolungarvíkur þ. 28. desember fyrir fullu húsi við góðar undirtektir áhorfenda, en var svo sýnd í fyrsta sinn í sjónvarpi, á RÚV, daginn eftir.
Myndin var unnin af unnin af Kvikmyndafélaginu Glámu í samstarfi við Ómar Smára Kristinsson myndlistarmann.

Verkalýðs og sjómannafélag Bolungarvíkur

Hluti af kynningu á Bolungarvík frá 1986.

Lína var einn af stofnendum Verkalýðs og sjómannafélags Bolungarvíkur.