Hér er mynd af Halldóru Sigríði Gísladóttur systur Línu Dalrósar.
Hún fæddist 27. október 1910 í Bolungarvík og andaðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi 30. ágúst 2002
Halldóra eða Dóra sem hún var alltaf kölluð ólst upp í Bolungarvík til fermingaraldurs. Var eftir það í vist á Ísafirði og í Reykjavík. Bjó með manni sínum Sigurði Sveinssyni á Sleggjulæk frá 1939 meðan hann lifði en flutti síðan í Borgarnes 1988 og var síðustu árin á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi.
Þann 28.12. s.l. lést Sólrún Ingunn Sverrisdóttir lögfræðingur aðeins 49 ára að aldri. Hún var langömmubarn Línu Dalrósar Gísladóttur, dóttir Laufeyjar Kristjónsdóttur og Sverris Þórólfssonar.
Í dag eru 120 ár frá fæðingu ömmu Línu. Guð blessi minningu hennar.
Hún fæddist í Bolungarvík þann 22. september 1904, og bjó þar alla tíð, lengst af að Skólastíg23.
Lína Dalrós eignaðist 11 börn, 55 barnabörn. Samtals eignaðist hún 240 afkomendur meðan hún lifði.
Í septeber 2024 eru afkomendur orðnir 490.
Foreldrar hennar voru Gísli Jónsson, f. 14. 4. 1851 á Tindum í Tungusveit í Strandasýslu, d. 24. 9. 1919, og Elísabet Guðmundsdóttir, f. 28. 8. 1872 á Meiri Hrauni í Skálavík, d. 23. 5. 1963. Faðir hennar Gísli „skáldi“ sagði að hún væri rósin sín í dalnum, og af því kom nafnið.
Frá níu daga aldri var hún alin upp hjá frændfólki sínu á Geirastöðum í Syðridal.
Hinn 4. ágúst 1923 giftist hún Jóhanni Sigurðssyni f.5.8.1891 d 27. ágúst 1932. Þau eignuðust sjö börn,
Seinni maður Línu var Jón Ásgeir Jónsson, f. 9. 7. 1911, d. 1. 10. 1996. Þau eignuðust fjögur börn.
Lína lést á Landspítalanum 14. desember 1997 níutíu og þriggja ára að aldri.