Í dag 24.12.2021 er fjöldi afkomenda Línu Dalrósar kominn í 444 samkvæmt Íslendingabók.
Gleðileg Jól.

Í dag 24.12.2021 er fjöldi afkomenda Línu Dalrósar kominn í 444 samkvæmt Íslendingabók.
Gleðileg Jól.

Flöldi afkomenda Línu Dalrósar er nú kominn í 436 samkvæmt Íslendingabók.



Nú er kominn möguleiki á Íslendingabók á að sjá með auðveldum hætti fjölda afkomenda einstaklinga.
Lína Dalrós á í dag samkvæmt því 432 afkomendur og eru 28 af þeim látnir.





Jóhann Líndal Jóhannsson lést þann 23.apríl síðastliðinn. Hann var fæddur 25.3.1930. Við sendum aðstandendum hans innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hans.

Í dag 22.september 2019 eru 115 ár frá fæðingu Línu Dalrósar Gísladóttur.
Hún fæddist í Bolungarvík þann 22. september 1904.
Þann 16.júní s.l. lést Oddný Lína Sigurvinsdóttir barnabarn Línu Dalrósar og Jóns Ásgeirs.
Blessuð sé minning hennar

FRÁ ÓSKARI JÓHANNSSYNI
„Eins og á þessari bók má sjá, hef ég skráð endurminningar frá barnæsku minni.
Megin tilgangur þess, er að láta í ljós þakklæti til forsjónarinnar, frá okkur öllum tíu systkinunum, fyrir að hafa gefið okkur kost á að njóta ástar og umhyggju einstakrar hetju, sem móðir okkar, Lína Dalrós Gísladóttir var.
Einnig ber mér sérstaklega að þakka Guðrúnu föðursystir okkar, allt sem hún gerði fyrir mig.
Frásögn þessi nær til ársins 1943, þegar ég var fimmtán ára. Þá urðu kaflaskipti, er ég hóf störf í matvöruverslun, og árið 1951, gerðist ég einn af “Kaupmönnunum á horninu”, til ársins 1982, frá því að tæplega 200 matvöruverslanir þjónuðu íbúum Reykjavíkur, og þar til að eigendur þeirra lentu, “Á milli steins og sleggju í pólitískum Hráskinnaleik stjórnvalda, og nauðungarvinnu fyrir Vísitölufjölskylduna, sem þá var búin að éta flest allar kaupmanna- fjölskyldurnar út á Gaddinn”.
Ég bauð mig aldrei fram til fálagsstarfa fyrir kaupmenn, hef aldrei þegið laun fyrir þau, en lenti samt í áraraðir á kaf í þeirri vonlausu baráttu. Það er mikil ósögð, og ótrúleg saga, sem ég hef aflað mikilla gagna um, og vonast til að geta komið á framfæri á næsta ári.“ (ÓJ)
Úr ritdómi í Pressunni:
„Bernskudagar er prýðilega skrifuð bók og erfitt að leggja hana frá sér. Hún segir harmræna sögu af fátæku fólki, basli þess, brauðstriti og nöturlegum aðstæðum íslenskrar alþýðu frá byrjun 20. aldarinnar og fram á miðja öldina.“
Myndina teiknaði Óskar af æskuheimili sínu í Bolungarvík en í bókinni eru margar myndir sem hann hefur teiknað og málað.
Hér er viðtal við Óskar á ÍNN